..::Ragnheiður::..

laugardagur, apríl 02, 2005

1 Apríl gabb......

Afhverju er maður ekki mikið hrekkjusvín með svaka 1 apríl gabb alveg á hreinu á 1 apríl......muna leggja höfðið í bleiti fyrir 1 apríl en ekki á hrekkjusvínadeginum sjálfum.
Mig langar að koma upp eitthverju ægilegu plotti fyrir næsta ár, og er ekki slæmt að byrja bara í dag að láta hausinn í gang, virkja hann aðeins, já koma svo........

Núna er ég búin að sitja í nokkrar mín með höfðið í bleiti í vinnunni á yfirvinnulaunum á laugardegi og hef ekki uppgvötað neitt til að tala um....hummmm.....

Hey ég fór á körfubolta leik í gær......ústlitahrynan með snæfell- keflavík, ég, Guðrún og Embla brunuðum af stað og suðurnesin here we come......og viti menn þarna hef ég bara ekki séð jafn marga hólmara og bara þegar ég var í grunnskóla á árshátið að syngja um AAA afi fer í bað.....eða eitthvað álíka....


AAA afi fer í bað Posted by Hello

En allavega þá var bara mjög gaman þó að snæfell hafi tapað en ég meina þeir hafa enn séns...og næsti leikur er á heimavelli og efast ég ekki um að þegar svona stór stund er mæti allir og gera allt brjálað.....en ég verð þó að segja líka að keflvíkingar voru nú betri í áhorfendalátum heldur en við.....þó svo ég geti ekki sagt mikið.....kom smá klapp frá mér...ekkert öskur, ég vildi sko ekki vera hás fyrir framan sjónvarpið um helgina.
En við vorum bara feimin.......við keflvíkingana....en koma svo peppa sig upp og gera allt brjálað eins og þegar forðum tímum þegar dómararnir treistu sér ekki út nema í lögreglu fylgd.....þá var sko stemning....gera svona aftur........þá mun ég sko keyra alla leið í hólmin.

En ég er að sjá framm á frekar döll helgi.......jæja það verður bara að hafa það......byrjaðu þó á einni rauðvísnflösku í gær sem er vert að klára í kvöld.....þið vitið fyrir framan sjónvarpið...

|

þriðjudagur, mars 29, 2005

Páskafrí búið

Jább maður er bara aftur mættur til vinnu, svei mér þá kátínan.....ég var svo sem komin með nóg af því að vera í fríi, en samt ekkert smá næs.......margir dagar í hvíld og náði ég örugglega meti í video áhorfi sem er notla bara jákvætt......einn daginn náði ég að horfa á 3 myndir fyrir kvöldmat (2 af þeim voru yfir 2 tímana) og svo heim til mömmu og pabba að borða, heim aftur með 2 aðrar dvd myndir náði að horfa á eina og byrjaði á hinni en gafst upp.....hummm klukkan var líka orðin frekar margt.......

En allavega það sem hefur verið að frétta þá er hugsanlega að fara til Reyðarfjarðar að vinna um óákveðinn tíma...hummm......hvernig ætli það verði, það er víst ekkert alltof mikið af kvennfólki þar........þá er ég að meina þar sem ég verð ekki á Reyðarfirði...er viss um að þar sé fullt af kvennfólki......svo var ég búin að heyra það að þarna sé ekkert hægt að gera nema að vinna og hanga á barnum að drekka bjór.....það ætti nú ekki að vera leiðinlegt....
kem kannski til baka með voða fína bjórvömb, alki og hugsanlega orðin trukka.....nei ég segi þetta ekki........allavega farin að pissa standandi.....

Humm ég veit ekkert um hvað ég er að tala....kannski er voða kvennlegt allt þarna, blóm í vösum og þess háttar....ég kemst þó ekki að þessu fyrr en ég fer, það kemur í ljós núna næstu daga.....held ég.

jæja núna eru 7 dagar liðnir frá því ég bloggaði síðast og er því 8 dagur í 56 daga dagatalinu mínu.

Sem sagt ekki lengra en 48 dagar í hinn eina rétta:)

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger