..::Ragnheiður::..

fimmtudagur, mars 17, 2005

Uppskrift að fullkomnu lífi?

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kallinn fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

|

miðvikudagur, mars 16, 2005

Skrítnir dagar......ekkert nema skrítið

Fyndið hvernig maður getur upplifað lífið á misjafnan hátt, fer bara eftir því hvernig maður vaknar á morgnana.
Einn dagur alveg hreint helvíti en svo sá snæsti dásamlegur.......ég er ekki manidipresed....hvernig sem það er skrifað. Þetta er bara skrítið hvernig allt getur verið á afturfótunum og ekkert heppnast og svo skiptir það alls engu máli næsta dag þegar maður er tilbúin í allt.

En allavega þá er þetta bara skrítið.....maður verður víst að fá að upplifa svoleiðis daga til þess að þekkja þá góðu....

Ég er svo skrítin þessa dagana.......hugsa alltof mikið um lífið og tilveruna, ég hugsa að það geri manni ekkert gott, mikið betra að lifa bara einn dag í einu eins og alkarnir gera. Hefur allavega gengið betur hjá mér að gera það, þá fer maður ekki að efast tilganginn með tilvist sinni á þessari jörð.
Ég er samt mjög hamingjusöm, allt eins og ég vil hafa það...eða svona nokkurn vegin.

Spurning er bara, hvað er maður að gera hér?

|

þriðjudagur, mars 15, 2005


Allir í stuði Posted by Hello

Skrítið hvernig maður er stundum

Það mætti segja að ég komi sjálfri mér stundum á óvart.....leiðinlega og skemmtilega,um helgina kom ég mér frekar leiðinlega á óvart ég héld að ég sé haldin sjálfpíningarkvöt á sumum stundum, en eitthvernvegin er þetta allt í dulúð á meðan haldið er útí óvissuna og sér maður ekki hvað maður er að gera fyrir það er búið og gert. Manni langar svo mikið að maður getur ekki stoppað sig.
T.d með það að fara á fillery.........maður sér ekki daginn eftir á meðan drykkjunni stendur.
Þó kannski að það komi manni ekkert að óvart að maður velur eina geggjaða kvöldstund fyrir hálfan sólahring í þynnku.

En allavega var svaka stuð á konunni um helgina, fór öll vikan í það að skipurleggja þennað æðisgegna viðburð og var það Hippakvöld í boði vinnunnar og svo var farið á grímuball......skrítið að fara á grímuball þar sem fullorðið fólk er klætt upp í allskonar gerfi.....smá sýnishorn frá kvöldinu þarna fyrir ofan.

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger