..::Ragnheiður::..

þriðjudagur, júní 07, 2005

Jæja er núna komið sumar:)

Ég ætla rétt að vona það, þar sem maður fékk smjörþefin af því hérna um daginn og svo auðvitað í Reykjavík um helgina...það var æðislegt þar, en núna er veðrið komið til okkar hérna fyrir austan og er spáð um 18 stigum í dag....guð ég er svo spennt að sjá hvort að það rætist.
Kannski það verður gert eitthvað skemmtilegt eftir vinnu....fórum í sund í gær og var það mjög svo notalegt.....ég þarf þó að fara að heimta nýjan kodda þar sem minn er svo þykkur að maður er komin hálfa leið uppí loft ef maður leggur hausinn á hann, vaknaði sem sagt með hálsríg og hausverk....ekki góður dagur til að byrja með.....svo vorum við að flytja um skála...á að vera eitthvað hljóðeinangraðari....en ekki virtist svo vera...þar sem ég vaknaði fyrir allar aldir við velting og byltur í félögunum í næstu herbergjum......svo sá sem er næsta herbergi við mig er svo stór að í hvert skipti sem hann hreyfir sig þá rekst hann harkalega í vegginn....og mig bregður ekkert smá mikið......hummm ekki sniðugt.

En allavega þá skora ég á alla sem lesa bloggið mitt að commenta.......ef þú hefur ekkert að segja núna þá bara næst.....mig langar sko að fá að vita hverjir eru að lesa þetta eða hvort ég sé bara að gera þetta fyrir sjálfa mig..........það er líka mun skemmtilegra að blogga ef maður fær comment.......

látið heyra í ykkur....fólk:)

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger