..::Ragnheiður::..

þriðjudagur, mars 29, 2005

Páskafrí búið

Jább maður er bara aftur mættur til vinnu, svei mér þá kátínan.....ég var svo sem komin með nóg af því að vera í fríi, en samt ekkert smá næs.......margir dagar í hvíld og náði ég örugglega meti í video áhorfi sem er notla bara jákvætt......einn daginn náði ég að horfa á 3 myndir fyrir kvöldmat (2 af þeim voru yfir 2 tímana) og svo heim til mömmu og pabba að borða, heim aftur með 2 aðrar dvd myndir náði að horfa á eina og byrjaði á hinni en gafst upp.....hummm klukkan var líka orðin frekar margt.......

En allavega það sem hefur verið að frétta þá er hugsanlega að fara til Reyðarfjarðar að vinna um óákveðinn tíma...hummm......hvernig ætli það verði, það er víst ekkert alltof mikið af kvennfólki þar........þá er ég að meina þar sem ég verð ekki á Reyðarfirði...er viss um að þar sé fullt af kvennfólki......svo var ég búin að heyra það að þarna sé ekkert hægt að gera nema að vinna og hanga á barnum að drekka bjór.....það ætti nú ekki að vera leiðinlegt....
kem kannski til baka með voða fína bjórvömb, alki og hugsanlega orðin trukka.....nei ég segi þetta ekki........allavega farin að pissa standandi.....

Humm ég veit ekkert um hvað ég er að tala....kannski er voða kvennlegt allt þarna, blóm í vösum og þess háttar....ég kemst þó ekki að þessu fyrr en ég fer, það kemur í ljós núna næstu daga.....held ég.

jæja núna eru 7 dagar liðnir frá því ég bloggaði síðast og er því 8 dagur í 56 daga dagatalinu mínu.

Sem sagt ekki lengra en 48 dagar í hinn eina rétta:)

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger