..::Ragnheiður::..

fimmtudagur, apríl 22, 2004

Trukka lessur eða Dumb and dumber

Loksins miðvikudagur búinn og var þetta eingin smá miðvikudagur hjá okkur gellunum á trukknum flotta, jammm við vöknuðum um átta og fórum beint ut að ná í bílinn fína og byrjuðum við á íbúðinni minni....svei mér þá hvað maður á mikið að dóti, ég sem kom aðeins með eina litla ferðatösku.......pabbi verður ekki kátur að fá allt dótið í bílskúrinn sinn en hann varð að sjá alla kosti og galla þegar hann ákvað að eiga mig.......og hér er ég nú, þannig að ákvörðunin var tekin mér í hag.
Allavega burðuðumst við með þetta niður alla stigana og urðum við eins og alvöru trukka lessur sveittar og ógeðslegar á stórum bíl og svo var haldið heim til Árnýar og þar var allt tæmt og allt gerðum við þetta á met tíma þar sem að ekki var allt pakkað hjá Árný.
Og lögðum við á stað í leiðangur og það alla leiðina á höfnina í Árósum og það á met tíma þar sem að við héldum að við mundum ekki ná fyrir lokun og þá hefðum við verið í djúpum kúk, en það sem stóð uppúr var að mig leið eins og við værum staddar í dumb and dumber og var það bara góð tilfinning en ég verð samt að segja að danir verða að fara að taka sig á í útvarpsmálum þvílíkt og annað eins ömulega útvarp.

Við náum á réttum tíma og fengum við ekki góða þjónustulund í afgreiðslu eimskips....þar að segja íslenska gellan var bara með "attetud" og sagði hún okkur að engin mundi hjálpa okkur en viti menn þar vorum við 2 ungar og saklausar stúlkur með fullan bíl af þungu dót og auvitað koma karlmennirnir til bjargar og það voru ekki meira né minna en 3 sem komu okkur til aðstoðar.....hvar værum við stödd án karlpungsins???

og svo var klukkan orðin 4 og við ekki búnar að borða neitt og var ákveðið að fá sér danskt smurrebrød og köku í eftirrétt sem við hefðum betur sleppt þar sem hún var svo góð að árný talaði ekki um annað á leiðinni heim.

Þegar heim var komið þá fórum við að þrífa og henda rusli og loksins fengum við okkur aftur að borða og var klukkan þá 10 og svo var farið að sofa á mjög lélegum dýnum.

En núna er ég hér að reyna að mála......hummm....mig hlakkar til þegar þetta er búið........

|

þriðjudagur, apríl 20, 2004

og skrifborðstóll líka gefins

|

ok.......

Nú er ekki langt þangað til skipið leggur úr höfn.....og ekkert selt....hummmm.....jæja nú er ég búin að ákveða að reyna að gefa eitthvað af þessu dóti sem að ég á og er það:

Lítið sætt eldhúsborð með 2 stólum í stíl og 2 kollum
Dýna 200X90 á stærð (gormadýna)
kollur fyrir fæturnar.......eða ekki ég held að ég sé búin að rústa honum.....kannski ef þið eruð klar að laga

heyrðu þetta er ekkert svo mikið......ég er líka búin að rústa hillunum þannig að ekki er hægt að gefa þær....
En ef þið viljið ekkert af svona caulity dóti þá má alveg benda manni á hvert er hægt að fara með þetta til að henda eða gefa fólki sem að vill fá svona gefins........spurning er hægt að fara með svona í rauðakrossinn????

Og allt þetta þarf að gerast fyrir morgundaginn........

|

sunnudagur, apríl 18, 2004

Mikið að gerast

jamm, og það ekkert smá. Eftir páska þá var ákveðið að halda heim á klakan og setjast þar að, jamm ég er sem sagt að fara núna á föstudaginn. Og eru mínir dagar taldir hér í landi baunana og allt á fullu í fluttningastussi, svei mér þá hvað það er leiðinlegt.
Og fyrir þá sem vanta húsgögn.....þá meina ég hvað sem er, sófa, rúm, skrifborð, skrifborðsstól, eldhúsborð og stóla, náttborð, sjónvarp, lélegar hillur, stól (þar að segja sjónvarpsstól og koll fyrir fætirnar, sófaborð og svo fín dína fyrir þá sem að eru alltaf að fá gesti.....flest allt keypt í Ikea.....ensilega látið mig vita af fólki sem að vantar eitthvað eða eitthvað þá endilega fyrir miðvikudag, því að þá fer ég með allt ef það verður ekki selt og bæti við að allt er selt á góðu verði og svo auðvitað ef að eitthverjum langar að kaupa myndir þá eru þær alveg eins til sölu.

P.S það eru myndir af öllu dótinu mínu og málverkum í myndaralbúminu mínu sem er nr. 2

Og svo var aðvitað tekið sitt síðasta djamm með stæl á föstudagsnótt eða eiginlega dag og kvöld og nótt.
Byrjuðum að sötra bjór úti í garði á svo fínum sólardegi sem að fór útí matarboð, því sem við lofuðim viggo og jebber.....eða hvernig sem það er skrifað og elduðum við fínan mat og svo var bara fólk að mæta í partí og úr því varð bara svaka djamm.
Og uppúr því kom bara kvef......og góð minning um fínt djamm.......eða fínt það sem ég man allavega.....ég ætla ekki að fara að tala fyrir minnisleisið.....nei nei bara smá plat.....ég man allt.
Myndir munu koma bráðurm......spennó

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger