..::Ragnheiður::..

laugardagur, mars 27, 2004

vá bara komin vika......

Ég sit hérna að reyna að teikna upp íbúðina mína, sem verkefni úr skólanum, og það er svo erfitt hún er öll svo skökk, og maður er bara ekki alveg að ná gráðunum á þessum hornum hjá mér.

En hvað um það, ég er alveg búin að eiga ágætis viku núna, okkur hjónunum.....þar að segja mér og Árný, var boðið í matarboð hjá Viggó á miðvikudaginn og var það voða gaman og mikið rauðvín drukkið......frekar erfitt í skólanum daginn eftir en gekk þó......svo í gær þá fórum við bara á smá skrall klukkan 4 eða við fórum á Sir Club og voru nokkrir pool leikir teknir.....og maður alveg að sína sýnar bestu hliðar.....not.....og svo nokkrir fooshball.. leikir teknir, voða stuð....við fundum okkur þar leikfélaga og þá fór mín að vinna........fékk frekar fínan meðspilara.....sem sagt hann átti leikinn.....ekki ég en ég var í hans liði þannig að ég vann líka.
Svo var fengið sér snæðing, en árný stakk bara af og ég ein eftir með strákunum......og kom hún ekki fyrr en nokkrum klukkutímum seinna þar sem að það var alveg ægilega mikilvægt að hringja til ísl.........hummm...ljót var hún....en hún kom svo og eftir nokkur brjáluð samtöl við mig þar sem umræðuefnið var að renna út hjá okkur nýju félugunum. Og svo loksins kom hún og dró hún Viggó með sér sem var alveg fínt.....því fleiri því betra ekki satt.
Og tókum við bara nokkra teningaleiki á Ryans bar voða stuð og svo fór maður bara snemma heim eða um eitt leitið og leið manni eins og klukkan væri um fimm eða eitthvað.
En allavega voða fínt að djamma svona snemma.

Svo í morgun vakti Árný mig með svaka látum í dyrasímanum og þóttist hún vera brjálaður arabi.....hummmmm....tókst ekki mjög vel........og kom hún með nýbakað brauð úr bakaríinu og kakó.....mmmmm....

Ég verð að fara að hætta þessu og fara að koma mér aftur að lærdóminum.........
það eru bara 7 dagar þangað til að ég fer heim......víiiiiiiiiii

|

sunnudagur, mars 21, 2004

Er ekki að koma sumar???.....hummm

Ég sit hérna inni og horfi útum gluggan, á bleytuna og rok.....eða rokið er eiginlega farið en allavega er hundleiðinlegt veður úti og maður neiðist til þess að hanga inn....
ömulegt þar sem var planað að fara í hjólreiðatúr með piknick körfu um helgina, alltaf eyðileggjast svona heilsuplön hjá manni og maður situr bara inni að borða allan þann gamla mat sem að maður finnur í skápunum sínum vegna letinar sem kemur með veðrinu.

Helgarsjónvarpið er ekki með besta móti hér í danmörku, ekkert nema fótbolti og endursýningar frá því í vikunni þannig að þolinmæðin fyrir letinni er á endarlokum.
Talandi um letina þegar maður hefur bara fullt að gera, þvo þvott og þrífa í holunni sína og lætur maður það alltaf bíða framm á síðasta dag......og núna er sunnudagur og þá eru allir......þú veist þeir lötu......að þvo sinn þvott og þá er ekkert létt að komast í þvottarvélarnar....

Ég bakaði pizzu í gær sem varð algjör puttapizza með tyggjó botn ég held að mig hafi aldrei misheppnast jafn mikið í pizzugerð eins og í gær.....en viti menn við átum hana...það er svona þegar maður er svangur kemst ekkert matarkyns framhjá manni...
Og var pizzan étin og gluggað í Braveheart á meðan....guð hvað það er langt síðan að maður horfði á það, maður með tár í augunum, seiga pizzu sem varla var hægt að kíngja.......hummmm.......en það tókst þó og var nærr öll pizzan borðuð......

En núna sé ég fram á heimferð.....bæði heim í mína holu hér......þar sem að maður er búinn að hanga heima hjá Árný alla helgina....og svo er ekki hægt að hugsa um heimferðina til ísland, við erum hérna tvær saman og getum ekki hætt að telja niður dagana, og ef við fáum leið á því þá fer maður að segja gamlar djammsögur af sér.....svona til minningar um ísland.

En ísland ég er að koma...........villery......bara 13 dagar........STUÐ:)

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger