..::Ragnheiður::..

föstudagur, maí 23, 2003

Svefnlaus Þyrnirós, naktir karlmenn og miðnæturganga

Maður bara vakti alla síðustu nótt, vegna skólakvíða.....ég meina ég er búin að sitja hérna inni hjá mér allan sólahringinn alla vikuna að vinna í eitthverju verkefni...sem að er reyndar mjög skemmtilegt, svona þegar á það er litið....að reyna að berjast við fullkomnunaráráttuna...(þó að ég hélt að ég ætti ekkert til sem að héti fullkomnunarárátta), og þegar maður er búin að leggja svona mikið á sig, þá vill maður fá jákvæð viðbrögð.....veistu að ég er núna farin að skilja fólk með prófkvíða. Og þegar ég fór að reyna að sofa í gær þá var það ekki hægt, vegna þess að maður heldur alltaf að það sem maður gerir, sé bara alls ekki nógu gott, þannig að ég reyndi að rifja upp nóttina þar áður vegna mjög skemmtilegs draums sem að mig dreymdi......já stelpur talandi um drauma, þá held ég að ég geti auðveldlega sleygið ykkur út....enginn sól og máni, enginn hryllingur, bara naktir karlmenn.....já ég sagði fullt af nöktum vel vöxnum karlmönnum í sturtu....þið vitið svona íþróttahúsa sturtum og ég sat auðvitað bara og horfði á, og það sá mig ekki neinn....hummmm ég var sem sagt svona skrágargata frík....nei.....það var betra.....ég var ósýnileg...hummm.....Þetta var góður draumur....en hann hjálpaði mér ekki neitt við að sofna í gær.
Ég skrapp út áðan og þegar mín ætlaði að leggja af stað heim þá var bara næsti strætó eftir einn klukkutíma....og þá var bara ákveðið að skella sér í heilsugöngu í miðnæturmyrkrinu..þar sem leynast pervertar og öfuguggar...ég meina hvað veit maður, en samt hélt maður örtröður af stað, og auðvitað ekki smeikur við neitt nema að hrasa og meiða sig.....ég meina maður má nú ekki reyna of mikið á sig. En óttin kom......þegar maður var horfin úr fjöldanum, þá var maður ekki lengur "seif". Hvað gerir maður þá....best að búa til plan ef að eitthvað fer úrskeiðis....ég náði nú ekki að búa til almennilegt plan á leiðinni...ég meina ef það væri nú til hið fullkomna plan þá væri maður nú ekki í neinni hættu, þegar maður dettur í hug að skella sér í heilsugöngu, þegar maður borðar óhollan kvöldmat og fær smaviskubit seint að kvöldi, eða missir af strætó eða bara að maður sé heilsufrík.
þannig að núna er ég búin að finna mitt mission í lífinu......búa til hið fullkomnu leið til að bjarga sér ef maður kann þar að segja ekki sjálfsvarnaríþróttir.....humm hannski er það bara hið fullkomna plan, og það er búið að finna það upp....jæja þá, þá verð ég að finna eitthvað annað......ég þarf allavega að hugsa þetta aðeins lengra.

|

miðvikudagur, maí 21, 2003

Þvílikur Dagur

Ég er búin að sitja núna frá klukkan hádegi þar til núna (11:00) að kvöldi til, í tölvunni að reyna að búa til fallegt poster....og eru þau orðin nokkuð mörg sem að eru komin......og þá er annað vandamál, það þarf að velja eitt úr flutt af glæsilegum plaggötum...og fer örugglega annar dagur í það. Allavega er ég búin að gera Plaggatið og þá er bæklingurinn bara eftir....hver gerir bækling til að auglýsa partý...ég veit það ekki. En allavega þarf að gera þetta....hummm.......og svo finnst manni alltaf geta gert betra og byrjar á nýju......ég sé bara ekki fyrir endan á þessu, svei mér þá.
Og kem ég hingað á blogger að blogga í tölvunni þegar ég ætti nú að fara að hugsa um að fara að breita um stellingu......nema það að ég sé bara föst, væri það ekki sniðugt þá mundi ég neyðast til að gera bæklinginn núna....humm nei ég ætla nú ekki að fara að hugsa um það núna.
Ég hugsa að ég þurfi nú bara að fríska aðeins uppá mig svona í tilefni morgundagsins......sem að ég veit ekkki hvaða vikudagur er, annað hvort mið.....eða fimm.... það kemur allavega í ljós á morgun.....já það sem að ég ver að reyna að koma útur mér er að ég að hugsa um að byrja daginn á göngutúr.....eða eitthvað, ég nenni allavega ekki að sitja hérna heima hjá mér allan daginn á morgun líka.......en ég verð.......hummmm.......hætta að hugsa, fara að sofa.....
ég held að ég ver að hætta núna þar sem hinn personuleikinn er eitthvað að reyna að brjótst út......hummm

|

mánudagur, maí 19, 2003

......Köben......

...........Maður er bara smá þreyttur eftir stutta en frekar mikila orkusogshelgi.......eða eitthvað, en allavega þá var svaka stuð í Köben þó að ég hafi nú algjörlega misst af henni vinkonu minni.......hún á sko "kærasta" og þá verður maður smá heimilislegur...en það er bara allt í lagi þar sem að hún tróð mér uppá bróðir sinn og dró hann mig í gegnum alla gay menninguna í Köben...jú jú og var það bara mikið gaman, alltaf gaman að kynnast nýrri hlið á lífinu, og var hann líka algjör perla.
Á maður ekki að segja alla söguna,er að ekki skemtilegra? Við komum um eitt leitið á fösturdegi og þá var haldið á Oskars cafe og þar hittum við Bjögga og Steinþór......og....og svo.....og eftir það er allt í móðu......og svo var ég allt í einu komin heim.

En ég held að húmor helgarinnar hafi verið lyng....."það er svo margt hægt að gera í lyngi".....

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger