..::Ragnheiður::..

föstudagur, mars 21, 2003

...Góðan daginn..

Jæja núna er enn einn góður sólardagur, og eiga fleiri eftir að koma...hmmm...og vera enn betri...Ég var að finna ótrúlega sniðuga síðu sem að breyri e-mailinu hjá manni og maður fær svona sniðuga mynd upp þegar það er komin póstur....ótrúlega sniðugt fyrirbæri og er ég að hugsa að sína ykkur hana E-mail síða.....endilega kíkið þangað..ég mæli með því.

En núna er ég búin að vera í fríi vegna þess að við vorum svo dugleg í byrjun vikunnar, að við kláruðum verkefnið sem að við áttum að gera. En þá hef ég bara ekkert að gera núna nema að slæpast og reyna að finna uppá eitthverju sniðugu til þess að gera, og er maður svo sem ekkert alltof virkur í kollinum að það komi eitthvað sniðugt upp, en hver veit nema að ég eigi eftir að gera eitthvað sniðugt í dag.....Í gær tók ég öll prófin á síðunni hjá Eddumiðlun, og komst ég að því að ég er vel samræðuhæf í veislu um íslenskar bókmentir, ég er dís en ekki norn, ég var það léleg í íslensku að það ég sem fékk í því prófi kom......do you speak icelandic???, þannig að maður ætti að taka sig smá á í þeim efnum, svo var ég meiri kona en maður......sem betur fer, ég hefði svo sem ekkert þurft neitt próf til þess að athuga það, ég hef betri leið til þess, og svo komst æeg af því að ég er plebbi........
Maðurinn sem að ég bý með hérna....hann Peter....missteig sig í vinnunni og er hann búinn að vera hérna heima allan daginn ægandi og ógandi.....mjög pirrrrr, það er eins og hann hafi aldrei meitt sig áður....en sem betur fer er bólgan að hjaðna..(svo ég þurfi ekki að hlusta á meira væl), en hvað á ég að fara að gera, kannski að maður fari bara að læra....það er góð hugmynd......

Þangað til seinna........

|

þriðjudagur, mars 18, 2003

Sífelldar breitingar.....

Núna held ég að þetta sé komið í öllum breitingar málum ég held að ég sé orðin ánægð með þetta núna, vonandi.....ég nenni nú varla að fara að breita þessu í 4 skiptið, en hver veit.
Núna er skólinn byrjaður alveg á fullu og er verkefna vika núna, og eigum við að skila verkefninu ekki seinna en á mánudaginn, en minn hópur er svo duglegur að við bara klárum þetta á morgun, hefðum getað það í dag en þar sem okkur vantaði efni sem var heima hjá einum hópmeðliminum þá þurftum við að stoppa. En það sem er að hópnum mínum er að þær....aðalega ein er svo neikvæð að það hálfa væri nóg. Kennarinn er heimskur, verkefnið bjánalegt og guð má vita hvað, en hún vinnur sitt verk og er dugleg og reyndar er hún ágætis manneskja, en þarf að passa sig.......ég held að það verði langt í það að hún nái fullri stjórn á sér........hún ætti að prufa hugleiðslu eða jóga. Það er reyndar ekki glatt á hjalla hjá fleiri hópum, þar sem að ein var grátandi í gær þar sem að hópurinn hennar gerði ekki neitt í síðasta verkefninu, og sá hún um alla vinnuna......og þurftum við öll að halda áfram í þeim hópum....maður hálfvorkennir henni, þar sem að hún er mjög dugleg og klár.
Við vorum reyndar með einn kínverja í hópnum okkar, en hann gerði ekki neitt, hann hitti okkur ekki einu sinni þegar við vorum að gera verkefnið, og þegar við áttum að fara upp á töflu að kynna verkefnið þá talaði kærastan hans við okkur um að hann mundi ekki koma með okkur uppá töflu þar sem að hann talaði frekar litla ensku.....þannig að auðvitað kvörtuðum við, og fengum pakistana í staðinn, hann er svo sem allt í lagi en vill ráða frekar miklu.......eins og (við erum að gera verkefni um Ísland) hann vildi ráða ýmislegu um Ísland sem að ég ein gat ráðið......því að ég er íslendingur. En ég held að við séum á góðri leið með að kúa hann!!!!!!

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger