..::Ragnheiður::..

sunnudagur, júní 01, 2003

phuuuuAHHHHHHAHHHHHHHHH

Já það er ekkert nema bara að gráta núna......huhuuu.....ég er skilin hérna eftir alein, hvað hef ég gert til að til að eiga þetta skilið....eða....ekki gert. En allaveg þá var alveg svakalega gaman að fá hana Árný í heimsókn, hún er algjört yndi.
Ég fór til Kaupmannahafnar til að sækja hana og eyddum við deginum í stórborginni....nánar tiltekið á Stikinu og planið var bara að slappa af í sólinni og kjafta, og héldum við planinu alveg.....það er alltaf gott að vera á með allt á hreynu....en allavega settumst við niður og fengum okkur dýrasta bjór sem að ég hef nokkurn tíman borgað hérna í DK og kostaði hann 70dkr en samt drukkum við hann með bestu list og fengum okkur bara annan...(talandi um að eyða í vitleisu) og urðum við ansi hressar. Næst á planinu var að fara heim í kot og skelltum við okkur á lestarstöðina. Um kvöldið skelltum við okkur hérna á kollegiebarinn og rættist alveg þvílikt vel úr kvöldinu...með öðrum orðum þá var bara ÓGEÐSLEGA GAMAN og vorum við til klukkan fjögur þar og var okkur boðið í eftirpartý en við ákváðum að við vorum búin að eyða nógu miklum tíma í þessa nýju vini okkar sem að við eignuðumst þarna, og fara frekar heim að sofa, svo að morgundagurinn mundi ekki allur fara í ekki neitt.
En maður hefði betur farið í partýið þar sem að ég vaknaði frekar snemma og hafði ég ekkert að gera nema að reyna að vekja Árný....sem by the way... var að meika það á barnum.....en allt kom fyrir ekki og hún náðu að opna augun um hádegi var hún enn drukkin, og greyjið hún þá var rétt búið að renna af henni um ellefu um kvöldið, en við þó eyddum deginum úti í sólinni í göngutúr, við skruppum smá á Arkaden um kvöldið eftir smá stopp hjá henni Kristrúnu.....en eftir svo skemmtilegt fyrrakvöldið þá var frekar erfitt að toppa það...þannig að við fórum bara snemma heim.
Svo í dag þá fengum við heimsókn, og sátum við bara að kjafta úti í sólinni og hafa það gott, og held ég bara að ég sé komin með pínu lit....en hver er ég að dæma...kannski eru þetta bara hyllingar eftir alla þessa úti veru í sólinni......en maður má nú vona....eða halda í vonina.
Og núna er ég bara ein.......og hvað á ég af mér að gera..........phhuuuhhhh...................

|

Takið Prófið
Hver er besti vinurinn
Geggjað Próf
-->

Powered by Blogger